Lithium rafhlaðan hafði marga kosti, Hún var aðeins 4 kg og tjakkurinn 110 kg. Aðrir tjakkar voru mikið þyngri. Með hleðslutæki tók aðeins 2-3 tíma að hlaða batteríið. Hleðslan entist í 3 tíma miðað við stöðuga vinnu. Það tók aðeins örfáar …. að skipta um rafhlöðu og því hægt að vinna heilan dag með auka rafhlöðu. Að auki er Lithium rafhlaðan viðhaldsfrí.
Í viðbót við Lithium rafhlöðuna var tjakkurinn hlaðinn nýjungum, sem ekki höfðu áður sést.
– Hægt var að losa úr bremsu frá mótor og nota tjakkinn sem handtjakk, ef rafhlaðan tæmdist.
– Einstakur eiginleiki var að geta keyrt með upprétt beisli. Við það næst minnsti mögulegi snúningsradíus, sem kemur sér vel í þrengslum t.d. í gámum og kassabílum.
– Ljós í handfanginu sýna, hvað mikil hleðsla er eftir á rafhlöðu og lætur vita, hvenær skal hlaða hana.
– Tjakkurinn var mikið minni og tók það lítið pláss, að kassabílar gátu tekið fullfermi með Microlift, þegar þeir með stærri tjakk hefðu þurft að skilja eitt bretti eftir.
– Tjakkurinn var uppbyggður, eins og handtjakkur og jafn auðvelt var að komast að öllu, eins og hjá handtjakk bili eitthvað.
Microlift ET20MH var réttilega kallaður „a new game changer“
Microlift þróaði ET20MH stöðugt áfram. Seinasti tjakkurinn í þeirri línu (ET20MH-P) kom eftir covid faraldurinn. Hann er með mótora án kola og með því að ýta takka, er hámarkshraði festur í 3 km/klst, sem gerir byrjendur á tjakk öruggari. Breyting í keyrslu með upprétt beisli líka með því að ýta á einn takka, sem er mikið einfaldara en á eldri gerðum.
Nýjasta módel Microlift er T20i hefur nú tekið við titlinum „a new game changer“.
T20i er með 48 Volt Li-ion rafhlöðu. Lýsing á T20i er í Vöruflokkum og Vörulista. Þar er líka lýsing á Microlift sraflara TS15i